Flestir kannast við jólamyndina Christmas Vacation frá 1989 með Chevy Chase. Fyrir 2 árum og 1 mánuði sá ég þessa kvikmynd í fyrsta og eina skipti. Mér fannst hún glötuð. Hundleðinleg, asnaleg, léleg og ekki rass fyndin. En í dag komst ég að því að einn af mínum allra uppáhalds leikstjórum/handritshöfundum, John Hughes skrifaði handritið fyrir Christmas Vacation! The Breakfast Club, Sixteen Candles, Pretty In Pink, Ferris Bueller's Day Off, Some Kind Of Wonderful, Uncle Buck, Planes, Trains & Automobiles, Home Alone? Algjörlega frábærar myndir allar saman! John Hughes skrifaði allar þeirra og leikstýrði nokkrum. Ég fékk nánast sjokk yfir því að komast að því að meistarinn skrifaði Christmas Vacation þar sem ég hef aldrei séð neitt slæmt frá John Hughes. Kanski ég þurfi að kíkja á CV aftur.
Óskarstilnefninganr voru tilkynntar fimmtudaginn 22. jan. Ef fólk þekkir mig veit það að ég er oftast óánægður með tilnefninganar og hvað þá verðlaunin! Nokkur dæmi:
2008 - No Country For Old Men vinnur sem besta mynd yfir There Will Be Blood sem var mikið betri mynd. Einnig stálu Coen bræður leikstjóraverðlaununum af meistar Paul Thomas Anderson.
Gary Oldman hefur aldrei fengið tilnefningu. Hann á a.m.k. skilið fyrir Immortal Beloved og Léon.
Sheryll Lee á skilið besta leikkona fyrir Twin Peaks: Fire Walk With Me, hún var ekki tilnefnd.
Laura Dern á skilið besta leikkona fyrir INALND EMPIRE, hún var ekki tilnefnd.
David Lynch (minn uppáhalds leikstjóri) hefur fengið 3 tilnefningar fyrir leikstjórann, The Elephant Man, Blue Velvet og Mulholland Drive. Elephant Man tapaði hann til Robert Redford fyrir Ordinary People. Blue Velvet tapaði hann til Oliver Stone fyrir Platoon og Mulholland Drive tapaði hann til Ron Howard fyrir A Beutiful Mind.
Alfred Hitchcock vann aldrei.
Stanley Kubrick vann aldrei.
Tilnefninganar í ár eru undarlegar, en ég held að Slumdog Millionaire eigi eftir að éta óskarinn. Það sem kom allra allra mest á óvart var það að Richard Jenkins fær tilnefningu fyrir besta leikara í The Visitor. Richard hefur verið einn af mínum "uppáhalds" leikurum síðan ég sá Six Feet Under og hann er algjörlega frábær í The Visitor. Vona samt að Mickey Rourke taki óskarinn fyrir besta leikara.
Svona er það, næstum allt!
Friday, January 30, 2009
Thursday, January 22, 2009
Næstum ekkert.
Svakalega varð ég fyrir miklum vonbrigðum með Slumdog Millionaire. Ekki nærrum því jafn góð og ég bjóst við. 4/5
20. janúar átti meistari David Lynch afmæli. 63 ára gamall er hann orðinn og í því tilefni horfði ég á Mulholland Drive, myndina hanns sem ég hef minnst horft á af þessum stóru. Stórlega kom hún mér á óvart og hefur hún aldrei verið betri en nú! Hún var öruglega í svona 4 - 5 sæti yfir bestu Lynch myndinar að mínu mati en nú er hún komin í 3 sæti eða jafnvel 2. Ég er ekki alveg viss.
Pínulítið hverfi í risastórri borg. Öll hús alveg eins, grá að lit. En einn garðurinn hjá einu húsinu er glæsilega grænn og fallegur. Fín tré, epplatré og jólatré. En húsið sjálft sem garðurinn tilheyrir er grátt og ógeðslegt. Svona er margt skrítið í heiminum
Svona er það, næstum ekkert.

Monday, January 12, 2009
Slummuhundur
En gaman. Aldrei hef ég unnið nógu vel til að sjá góða kvikmynd. En í dag gerðist það! Ég vann miða á forsýningu myndarinnar Slumdog Millionaire í getrun á www.topp5.is
Síðustu nótt (01:00 12. Jan) voru Golden Globe verðlaunin afhent og fylgdist ég vel með því. Hoppaði hæð mína þegar Mikcey Rourke vann sem besti leikari í aðalhlutverki. Það vill svo skemmtilega til að Slumdog Millionaire vann allt sem hún var tilnefnd til. Besta mynd, besti leikstjóri, besta handrit og besta tónlist. Virkilega gaman að fá að sjá hana í kveld í staðin fyrir að bíða til 30. jan
Þá er hann búinn og ekki verður annar fyrr en næst.

Thursday, January 8, 2009
7 mínútur
Einungis 7 mínútur. Ekki meira og ekki minna. Margfallt og þrefallt. Stórt og grátt. Sumir myndu segja að þetta sé allt saman vitleysa. En allt er þetta rétt og satt og satt og rétt.
Aldrei hef ég séð jafn flumsulegt DVD hulstur og núna áðan. Tólf Apar keyptir í Eymundson.
Kókdós og Siríus Suðusúkkulaði. Það gerist ekki betra en það. Nema þá kanski appelsínu suðusúkkulaði. En nú er komið nóg.
Góða nótTt!

Subscribe to:
Posts (Atom)