Thursday, January 22, 2009

Næstum ekkert.

Svakalega varð ég fyrir miklum vonbrigðum með Slumdog Millionaire. Ekki nærrum því jafn góð og ég bjóst við. 4/5

20. janúar átti meistari David Lynch afmæli. 63 ára gamall er hann orðinn og í því tilefni horfði ég á Mulholland Drive, myndina hanns sem ég hef minnst horft á af þessum stóru. Stórlega kom hún mér á óvart og hefur hún aldrei verið betri en nú! Hún var öruglega í svona 4 - 5 sæti yfir bestu Lynch myndinar að mínu mati en nú er hún komin í 3 sæti eða jafnvel 2. Ég er ekki alveg viss.

Pínulítið hverfi í risastórri borg. Öll hús alveg eins, grá að lit. En einn garðurinn hjá einu húsinu er glæsilega grænn og fallegur. Fín tré, epplatré og jólatré. En húsið sjálft sem garðurinn tilheyrir er grátt og ógeðslegt. Svona er margt skrítið í heiminum

Svona er það, næstum ekkert.

No comments:

Post a Comment