Saturday, February 28, 2009

Kokkurinn, Þjófurinn, Konan Hanns & Ástmaður Hennar

Síðasta fimmtudag, 26. Febrúar horfði ég á eina allra bestu kvikmynd sem ég hef séð í langann tíma! Það var kvikmyndin The Cook The Thief His Wife & Her Lover. Alveg ótrúleg kvikmynd. Ein allra best myndaða kvikmynd sem ég hef séð. Alveg ótrúlega falleg útlitslega.

Myndin gerist mestöll á veitingastað og eru fjórir mismunandi hlutar veitingastaðsins sem við sjáum. Fyrir utan veitingahúsið, eldhús veitingahússins, matsalinn og baðherbergið. Hver hluti hefur sinn eigin lit. Fyrir utan er allt blátt, í eldhúsinu er allt grænt, í matsalnum er allt rautt og á baðherberginu er allt algjörlega hvítt. Föt leikarana breyta um lit eftir því hvar það er í veitingahúsinu. Kokkurinn reynir svo allt sem hann getur til að þjófurinn komist ekki að hvað konan hanns er að gera.

Myndin fjallar um mafíuforingja (The Thief) sem á afskaplega fínt veitingahús og konuna hanns (his wife) sem gera ekkert nema sitja við sama borðið á veitingastaðnum og éta. Einnig er eitthvað fólk með þeim alltaf, sennilega frændfólk og sistkyni. Konan er hinsvegar orðin voða leið á manninum sínum og ákveður að vera með öðrum manni á milli máltíða. Þau hittast ýmist á baðherberginu eða eldhúsinu.

Myndatakan er algjörlega frábær. Það er eins og myndavélin ferðist bara í eina átt og það beint eftir veggjum veitingahússins. Myndin lítur líka pínu út eins og leikrit. Einnig er mjög skemmtilegt að það er stórt málverk sem hangir í matsalnum og er útlit myndarinnar byggt á málverkinu. Myndin endar svo á að tvö stór og þykk rauð tjöld falla fyrir skjáinn.

Loka Niðurstaða: Glæsilega frábær kvikmynd/listaverk
Loka Stjörnugjöf: 5 stjörnur af 5 mögulegum.

Monday, February 23, 2009

Óskarinn...

Þarna fór það. Óskarinn er nýbúinn og ég hef aldrei verið jafn vonsvikinn. Aldrei nokkutíman. MICKEY ROURKE VAR RÆNDUR!!! Sean Penn stal óskarnum af honum! Mickey Rourke, stórmikill leiksigur í The Wrestler. Mickey Rourke ER Randy "The Ram" Robinson. Randy "The Ram" Robinson ER Mickey Rourke. Sean Penn ER Sean Penn. Harvey Milk ER Harvey Milk. Mickey átti óskarinn algjörlega skilið fyrir The Wrestler. Hann samþykkti að leika í The Wrestler ókeypis. Hann fékk ekkert borgað fyrir myndina. Hann gerði hana vegna þess að honum fannst Randy spegla líf sitt að hluta til. Enda gerir hann það. Mickey Rourke var þó búinn að segja að hann vildi að Sean Penn vinni. Sean Penn vildi líka að Sean Penn vinni svo þeir eru báðir glaðir held ég. Akademían hefur gert stór og mikil mistök í gegnum árin en engin eru stærri og meiri en það að gefa Sean Penn óskarinn fram yfir Mickey "The Ram" Rourke.

Ég hef ákveðið að halda fyrstu "Kvikmyndaverðlaunin Mín" og verða verðlaunin tilkynnt hér á þessari vefsíðu sunnudaginn 1. Mars. Núna ættla ég að setja upp hér lista af þeim sem eru tilnefndir. Þetta er einungis gert til gamans og það að ég hef gaman að því að búa til lista og svoleiðis. Titill verðlaunana er asnalegur, ég veit það vel en mér dettur ekkert betra í hug.

Besta Kvikmynd

The Dark Knight
Doubt
Låt Den Rätte Komma In
WALL•E
The Wrestler

Besti Leikstjóri

Andrew Stanton - WALL•E
Christopher Nolan - The Dark Knight
Darren Aronofsky - The Wrestler
David Fincher - The Curious Case Of Benjamin Button
Thomas Alfredsson - Låt Den Rätte Komma In

Besti Leikari

Mickey Rourke - The Wrestler
Philip Seymour Hoffman - Doubt
Richard Jenkins - The Visitor
Robert Downey Jr. - Iron Man
Heath Ledger - The Dark Knight

Besta Leikkona

Amy Adams - Doubt
Kate Winslet - The Reader
Marisa Tomei - The Wrestler
Meryl Streep - Doubt
Penélope Cruz - Vicky Cristina Barcelona

Besta Handrit

The Dark Knight
Låt Den Rätte Komma In
Tropic Thunder
WALL•E
The Wrestler

Besta Tónlist

The Dark Knight
Doubt
Frost/Nixon
Låt Den Rätte Komma In
WALL•E

Besta Lag

Down To Earth - Peter Gabrial
The Wrestler - Bruce Springsteen

Besta Myndataka

The Dark Knight

Låt Den Rätte Komma In
Slumdog Millionaire
WALL•E
The Wrestler


Besta Klipping

The Dark Knight
Frost/Nixon
Iron Man
Låt Den Rätte Komma In
Slumdog Millionaire


Besta Hljóð

The Dark Knight
Iron Man
Låt Den Rätte Komma In
Slumdog Millionaire
WALL•E


Bestu Tæknibrellur

The Dark Knight
Hellboy II: The Golden Army
Iron Man


Besta Listræna Stjórnun

The Curious Case Of Benjamin Button
The Dark Knight
Doubt
Låt Den Rätte Komma In
WALL•E


Bestu Búningar


The Curious Case Of Benjamin Button
The Dark Knight
Iron man
The Reader
Revolutionary Road


Besta Förðun

The Curious Case Of Benjamin Button
The Dark Knight
Låt Den Rätte Komma In


Þá er það komið.




Sunday, February 22, 2009

Óskars kvöld!

Stöð 2 ákveða að svíkja kvikmyndaaðdáendur á Íslandi og sýna ekki óskarsverðlaunin í ár. Í gegnum "Skjáinn" er hægt að horfa á verðlaunaafhendinguna á þýsku sjónvarpsstöðini Pro 7. En þeir sem eiga ekki pening til þess þá er hægt að horfa á hátíðina hér http://www.newsletter.co.uk/CustomPages/CustomPage.aspx?PageID=77569

Það að Stöð 2 ættli ekki að sýna þetta er skelfilegt fyrir kvikmyndaaðdáendur. Ég var búinn að bíða nokkuð lengi eftir þessu en svo er það bara ekki! Ég mun horfa á þetta á netinu og fylgjast með rauða dreglinum á E! og fylgjast með á www.imdb.com

En hér ættla ég að skrifa niður það sem ég held um verðlaunin.

Besta Kvikmynd - Ég er búinn að sjá allar fimm myndinar sem eru tilnefndar; Slumdog Millionaire, The Cuirous Case Of Benjamin Button, The Reader, Frost/Nixon og Milk. Engin af þeim finnst mér eiga skilið verðlaunin. En ef ég mætti ráða þá væri það annaðhvort Benjamin button eð Frost/Nixon.

Besti Leikstjóri - Danny Boyle fyrir Slumdog Millionaire, Stephen Daldry fyrir The Reader, David Fincher fyrir Benjamin Button, Ron Howard fyrir Frost/Nixon og Gus Van Sant fyrir Milk. Ég er nokkuð viss um að Danny Boyle vinni þetta bara vegna þess að myndin hanns er Slumdog Millionaire. Ég vill að David Fincher vinni þetta en samt ekki fyrir Benjamin Button.

Besti Leikari í Aðalhlutverki - Það er nánast augljóst að Mickey Rourke vinni þetta. Sumir halda að Sean Penn vinni fyrir Milk. Það gæti vel gerst þar sem akademían er pínu skrítin stundum. Hinir sem eru tilnefndir eru Richard Jenkins fyrir The Visitor (væri gaman að sjá hann vinna þó svo að ég efist stórlega um það), Frank Langella fyrir Frost/Nixon og Brad Pitt fyrir Benjamin Button.

Besta Leikkona í Aðalhlutverki - Hérna er ég alveg týndur. Hef ekki hugmynd um hver gæti unnið þetta. Anne Hathaway fyrir Rachel Getting Married, Angelina Jolie fyrir Changeling, Melissa Leo fyrir Frozen River, Meryl Streep fyrir Doubt og Kate Winslet fyrir The Reader. Ættli ég segi ekki bara Meryl Streep.

Besti Leikari í Aukahlutverki - 100% Heath Ledger. Það þarf ekki að segja meira um það. Hinir eru Josh Brolin fyrir Milk, Robert Downey Jr. Fyrir Tropic Thunder (það væri nú gaman), Philip Seymour Hoffman fyrir Doubt og Michael Shannon fyrir The Reader.

Besta Leikkona í Aukahlutverki - Hér er ég ekki heldur viss en ef ég mætti ráða þá væri það Marisa Tomei fyrir The Wrestler. Ég er nokkuð viss um að það verði annaðhvort Amy Adams fyrir Doubt eða Penélope Cruz fyrir Vicky Cristina Barcelona. Hinar tvær eru Viola Davis fyrir Doubt og Taraji P. Henson fyrir Benjamin Button.

Besta Handrit, Upprunalegt - Ég vona að WALL•E vinni þetta þar sem handritið er algjörlega frábært og hefur gott skilaboð. Akademían velur sennilega Milk. Hin handritin eru Frozen River, Happy-Go-Lucky og In Bruges.

Besta Handrit, Áður Útgefið - Hér giska ég á Slumdog Millionaire bara vegna þess að það er Slumdog Millionaire. Vona algjörlega að Benjamin Button vinni ekki þar sem það handrit er nánast bara Forrest Gump 2 (reyndar bæði skrifuð af sama manni). Ég vona hinsvegar að Doubt vinni þar sem það var nokkuð gott og skemmtilegt handrit með ótrúlega frábæru after thought. Frost/Nixon og The Reader eru einnig tilnefnd.

Ég ættla ekki að fara útí hin verðlaunin en vona að WALL•E vinni besta teiknimynd!

Wednesday, February 11, 2009

Glímukappi

Það skemmtilega atvik gerðist að ég eignaðist ókeypis miða á Topp5 forsýningu The Wrestler. Ef fólk hefur lesið þá veit það kanski að ég varð frekar óánægður með Slumdog Millionaire og The Curious Case Of Benjamin Button. Bjóst nokkuð við að ég yrði fyrir vonbrigðum með The Wrestler líka. Svo er sko aldeilis ekki! The Wrestler er að mínu mati besta mynd ársins 2008. Algjört meistaraverk. Allt er nánast fullkomið við myndina. Stórkostlegur leikur Mickey Rourke sem Randy "The Ram" Robinson er ótrúlegur. Rourke fæddist til að leika þennan karakter.

Myndin inniheldur mun minni glímu en ég bjóst við, einungis 3 eða 4 atriði. Þetta er "character driven" kvikmynd. Algjörlega. Allir leikaranir standa sig frábærlega. Meira að segja glímukallanir sem eru ekki leikarar. Allir karakteranir voru áhugaverðir og skemmtilegir. Randy Robinson mun fara niður í kvikmyndasöguni sem einn allra besti karakter nokkutíman í kvikmynd.

Sumir munu líklega vera ósáttir með endann á myndini en fyrir mér var hann fullkominn fyrir þessa mynd. Hún hefði ekki getað endað betur. Mér finnst frábært þegar myndir enda ekki beint heldur karakteranir fá að lifa ennþá í heiminum sem myndin skapar. Darren Aronofsky sannar með þessari mynd að hann er einn allra besti leikstjóri af "nýju kynslóðini". Mynd hanns, Requiem For A Dream, var stórgóð en The Wrestler toppar hana í klessu.

Fjórar kvikmyndir frá árinu 2008 hafa "lamið mig í andlitið" og það eru The Dark Knight, WALL•E, Låt Den Rätte Komma Inn og The Wrestler. Þær sem ég á eftir að sjá eru The Reader, Milk, Frost/Nixon og Gran Torino. Býst ekki við að nein af þeim lemji mig í andlitið.

Ég hvet alla til að fara og sjá The Wrestler í kvikmyndahúsi þar sem þessi mynd er einstök upplifun. Myndin kemur í almennar sýningar í Háskólabíói 13. Febrúar.

Algjör niðurstaða: Ein allra besta kvikmynd sem ég hef nokkutíman séð. Strax komin í topp 20 ef ekki topp 10.

Stjörnugjöf: 5 af 5.

Ekki hef ég meira að segja í þetta skipti.

Wednesday, February 4, 2009

Enginn er nánast allur, þrjár kvikmyndir.

Nánast er enginn alltaf allur ef enginn er nánast allur. Ekki skil ég hvað ég er að meina með þessu en það verðru nú bara að vera þannig. Næst er best að finna út og leysa verkefnið. Ef verkefnið er ekki leyst er möguleiki á að allt hafi gleymst.

Nú að öðru. Kvikmyndin My Bloody Valentine 3D. Ég fór á hana og bjóst alls ekki við miklu. Fór reyndar bara til að sjá þrívíddina. Kemur í ljós að ég hef fundið verstu kvikmynd allra tíma. Ég finn ekki eitt einasta örmagn í myndini sem mér finnst gott. Allir leikaranir, karakteranir, leikstjórnin, myndatakan, tónlistin (tók nú ekki einu sinni eftir henni), útlitið og handritið var SKELFING!

Þrívíddin, ástæðan fyrir því að ég sá myndina, var glötuð. Leit út eins og mörg þykk lög af hlutum raðað saman í stórann bunka sem horft er beint á. Hver hlutur var sér í myndini og "3D effectið" kom ekki nema kanski 4 - 5 sinnum í myndini. Friday The 13th Part 3 var gerð í 3D. Þó svo að ég hafi ekki séð hana í þrívídd (bara venjulega) þá fannst mér þrívídin í henni betri en í My Bloody Valentine 3D. Sagan fyrir MBV er algjörlega fáránlega asnaleg. Það er ekkert vit í söguni. Þeir sem gerðu þessa mynd reyndu ekki einu sinni að gera hana "scary".

Ekki bara er myndin illa gerð og léleg heldur er hún huuuundleiðinleg! Snorefest væri betra nafn fyrir myndina! Það eina sem ég sá útúr þessari mynd var hlægilegasta "hrollvekja" allra tíma og þar að auki lélegasta mynd allra tíma. Í hvert einasta skipti sem einhver var drepinn, þá fór ég bara að hlægja. Þetta var alltsaman svo fyndið! CGI blóð og ógeð virkar ekki. Frekar taka tíma í að gera allt svoleiðis "practical" kostar öruglega minna og tekur mögulega styttri tíma. Day Of The Dead (1985) er fullkomið dæmi um frábært blóð og gore án þess að nota tölvu. Hví líta kvikmyndagerðamenn í dag ekki til þeirrar myndar og sjá "Jájá, það er hægt að gera þetta án þess að nota tölvu! En sniðugt!"

Algjör niðurstaða er: Versta mynd allra tíma.
Stjörnugjöf: einn milljónasti úr hálfri stjörnu.

Einnig er ég búinn að sjá kvikmyndinar The Curious Case Of Benjamin Button og Doubt.

Ég var ekki alveg nógu ánægður með The Curious Case Of Benjamin Button. Var ekki ánægður með hvernig myndin er sögð. Annasr algjörlega frábær mynd. Gef henni Fjóra og hálfa stjörnu af fimm.

Doubt var líka stórgóð og fyrir mér varð hún betri eftirá þegar maður fór aðeins að hugsa. Öll efasemdin í myndini er beint að áhorfendunum. Það sem þú heldur að gerðist er rétt. Fjórar stjörnur fyrir Doubt.