Monday, March 9, 2009

Skemmting

Á föstudaginn síðasta (6. mars) gekk margt á. Ég fór að sjá tvær kvikmyndir í kvikmyndahúsi.

Fyrst var það Clint Eastwood myndin Gran Torino. Á undan Gran Torino var sýnd Íslensk stuttmynd, Aldrei Stríð Á Íslandi. Sú mynd var hrikalega léleg. Asnalegur söguþráður, illa leikin, illa gerð og bara overall slæm mynd. Það versta var samt myndatakan. Autofocus getur stórskemmt myndir. Þegar það er svona afskaplega mikil hreyfing í gangi og myndavélin inní öllu með stillt á autofocus reynir vélin að focusa á allt sem hún sér og endar það með að ekkert er í focus. Aldrei Stríð Á Íslandi er slæm mynd og vill ég aldrei sjá hana aftur. Gef henni 1 stjörnu af 5.

Þá að Gran Torino. Myndin fjallar um gamlann mann, Walt Kowalski (Clint Eastwood) sem er orðinn eini hvíti bandaríkjamaðurinn í hverfinu. Allir aðrir eru asískir. Ég er ekki alveg viss hvað þetta þýðir en fólkið segist vera "Hmong fólk". Walt Kowalski er nýbúinn að missa konuna sína og er fúlasti maður á jörðini. Hann urrar yfir allt og gerir ekkert nema drekka bjór og laga hluti. Ungur Hmong strákur, Thao, er beðinn um að stela fína bílnum hanns Walt, 1972 Ford Gran Torino og útfrá því kemst á stað stórmikil atburðarás. Myndin er vikrilega góð tæknilega séð. Góð myndataka, tónlist og allt svoleiðis. Clint stendur sig ótrúlega vel í hlutverki Walt Kowalski og er þetta sennilega besta frammistaða hanns sem leikari.

Myndin er frábærlega fyndin og Walt er einn skemmtilegasti/reiðasti/fúlasti gamli kall sem sést hefur. Vandamálið við myndina er hinsvegar að allir hinir leikaranir sem eru ekki Clint Eastwood eru hundlélegir. Enginn af þeim getur leikið. Svo er söguþráðurinn ekkert voðalega spes.

Lokaniðurstaða: Góð kvikmynd en hefði getað verið betri.
Lokastjörnugjöf: 3.5/5


Næst var það kvikmynd sem ég hef beiðið eftir nokkuð lengi. Watchmen. Þetta var Nexus forsýning og eru þær alltaf góðar. Ég sá trailerinn fyrir Watchmen fyrst í sumar 2008. Mér fannst hann mjög flottur og ákvað að lesa bókina/teiknimyndasöguna.

Watchmen er um 350 bls teiknimyndasaga sem ég myndi telja sem bók. Hún var gefin út í 12 litlum blöðum 1985 og svo allt saman í bók árið 1986. Watchmen er besta bók sem ég hef nokkutíman lesið. Allt er frábært við hana. Þó svo að ég hafi ekki lesið margar bækur þá var þessi algjörlega þess virði. Einnig er skemmtilegt að segja frá því að ég hef aldrei nokkutíman lesið heilt myndasögublað áður en ég fór í Watchmen. Algjört meistaraverk þessi bók. Ég beið spenntur eftir myndini í nokkuð langann tíma. Svo kom að því.

Watchmen gerist árið 1985 í "alternate" bandaríkjunum. Nixon er forseti bandaríkjana í 3 sinn og það er eðlilegt að sjá ofurhetjur. Ekki alveg venjulega það sem maður hugsar með ofurhetjur heldur bara fólk í búningum að stöðva glæpi. Engir ofurkraftar. Árið 1977 voru þær hinsvegar bannaðar og allir hættu nema einn, Rorschach. Sagan byrjar á því að The Comedian er dreipinn. Hann var ofurhetja í "Watchmen" ofurhetju klíkuni. Rorschach fer að ransaka málið og heldur að það sé einhver sem reynir að drepa allar fyrrverandi ofurhetjur. Dr. Manhattan er sá eini sem hefur ofurkrafta, en hann getur gert allt. Dr. Manhattan og Silk Spectre II eru að vinna fyrir bandaríska ríkið. Dan Drieberg var Nite Owl II og er nú feitur karl sem langar að komast aftur í búninginn. Adrian Veidt var Ozymandias, en hann hætti 4 árum áður en ofurhetjur voru bannaðar. Hann er nú milljónamæringur og á stórt og mikið fyrirtæki. Rorscach heldur rannsóknini áfram og verður úr því stór og mikil saga.

Kvikmyndin Watchmen var nokkuð góð. Alls ekki nógu góð. Hún lítur alveg ótrúlega vel út en hefur ekki sama "feel" og bókin. Flestir leikaranir standa sig ágætlega og ná hlutverkunum nokkuð vel. Jackie Earle Haley sem leikur Rorschach hinsvegar nær þessu hlutverki svo ótrúlega vel að hann eiginlega bara var Rorschach. Ég get ekki ýmindað mér annan leikara í þetta hlutverk. Hann var algjörlega bestur í myndini. Jeffre Dean Morgan leikur The Comedian og er næstbestur að mínu mati. Billy Cudrup er svo Dr. Manhattan og er mjög góður. Patrick Wilson sem Nite Owl er líka mjög góður. Matthew Goode og Malin Akerman eru frekar léleg sem Adrian Veidt og Silk Spectre. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja um þessa mynd þar sem það var sleppt svo ótrúlega mikklu úr bókini. Mörgum af bestu og mikilvægustu atriðunum. Bókin passar einhvernvegin ekki sem kvikmynd. Alltof þung og mikil saga í eina kvikmynd. Tónlistin passar voða vel við flest atriði. Þrír hlutir sem ég hrósa stórlega:

1. Intro credit listinn. Algjörlega frábær. Sýnir alskonar hluti sem gerðust áður en sagan byrjar í super slow motion. Þetta atriði lítur stundum út eins og að vera á safni. Bob Dylan lagið The Times They Are A Changing er spilað yfir þessu og er nefnst á það lag í bókini. Það besta að mínu mati við alla myndina gerist í þessu atriði. Þetta er eitthvað sem er ekki í bókini en er alveg frábært. Ættla ekki að segja meira en það inniheldur John F. Kennedy.

2. Jackie Earle Haley. Leikur hanns er bara svo stórkostlegur. Ég gat ekki ýmindað mér Rorschach betri en hann er í myndini.

3. Útlitið. Myndin lítur svo svakalega vel út og er pottþétt ein flottasta mynd allra tíma. Art direction óskar fyrir þessa! Hvert einasta sett kemur beint uppúr myndasöguni. Jafnvel minnstu smáatriði.

Það versta við myndina var að endanum var breytt. Endirinn á bókini er algjörlega perfect og segir manni það að það er enginn vondur og enginn góður. Bókin sjálf er eiginlega bara stór og mikil gagnrýni á ofurhetjur og hvað það er asnalegt allt saman. Fullorðið fólk hlaupandi um í búningum? Hvaða asnaskapur er það?

Loka Niðurstaða: Nokkuð sáttur. Virkilega góð mynd, en þetta passar ekki alveg sem kvikmynd.
Loka Stjörnugjöf: 3.5/5

Ekki alveg viss með stjörnugjöfina, gæti verið 4/5 en ég þarf að sjá myndina aftur.

No comments:

Post a Comment