Hér hef ég ekki sést lengi! Og á þessum langa tíma hefur margt og mikið gerst. Byrjum hér á Walt Disney.
Þegar ég var yngri þá voru Disney teiknimyndinar algjörlega í uppáhaldi hjá mér. Lion King var spiluð a.m.k. einu sinni á dag, ég fór á margskonar vídjóleigur til að sjá fleiri Disney myndir og nokkrar sá ég í bíó. En svo kom eitthvað undarlegt tímabil í lífi mínu þar sem ég hataði Disney. Ég fór til Florida og neitaði að fara með í Disney World (en fór nú samt), ég fór ekki á Disney myndir í bíó (sé eftir því núna) og ég seldi allar Disney spólunar mínar. En núna alltíeinu finnst mér Disney algjörlega frábært og ættla ég mér að eignast allar Disney teiknimyndinar á DVD/Blu-ray. So far er ég aðeins búinn að næla mér í Þyrnirós á Blu-ray og svo Pétur Pan, Aladdin, Jafar Snýr Aftur, Mulan, Lady & The Tramp ogSkógarlíf á DVD. Vonandi stækkar þetta safn fljótt.
Hví ættli það taki svona langann tíma fyrir íslenskar verslanir að fá nýjustu Blu-ray myndinar? Þá er ég að tala um Elko, BT og Skífuna. Ekki 2001 og Nexus, þeir eru alltaf með nýjustu Blu-ray myndinar. En Elko, BT og Skífan eru með Blu-ray mun ódýrara en 2001 og Nexus. Íslensku útgefendunir eiga það til að flytja bara inn sænsku Blu-ray útgáfunar þar sem þær innihalda oft íslenskan texta (og tal á teiknimyndum). Það tók Þyrnirós a.m.k. 3 mánuði að koma til Íslands á Blu-ray. Nú er hægt að fá sænsku útgáfuna í búðum, en hún er búin að vera til heillengi. Gosi er nú búinn að vera á Blu-ray í 2 vikur en ekki er hún komin til Íslands. Hinsvegar er DVD útgáfan af Gosa til sem kom út á sama tíma og Blu-ray útgáfan. Halda mætti að það sé bara svona lítil eftirspurn af Blu-ray á Íslandi en svo er ekki. Þyrnirós er uppseld nánast allstaðar og The Dark Knight og WALL•E sem komu út í Desember í fyrra seldust strax upp og voru ekki til aftur fyrr en bara núna nýlega. Undarlegt er þetta allt saman.
Uppgvötaði ég nýjann meistara. Ingmar Bergman. Ég sá myndina hanns Persona fyrir um það bil ári og fannst hún nokkuð góð. En nú hef ég keypt mér 8 myndir eftir hann og er nú búinn að horfa á 2. Det Sjunde Inseglet (Sjöunda Innsiglið) og Smultronstället (Villt Jarðaber). Hinar myndinar sem ég keypti voru Sommarnattens Ieende (Bros Á Sumarnótt), Jungfrukällan (The Virgin Spring), Fanny Och Alexander (Fanny Og Alexander) og svo Þríleikinn hanns, Såsom I Ett Spegel (Sem Í Skuggasjá), Nattvärdsgästerna (Kvöldmáltíðargestirnir) og Tystnaden (Þögnin). Allt saman er þetta gefið út af "The Criterion Collection" Sem er amerískt fyrirtæki sem tekur til góðar myndir og gefur þær út á DVD í veglegum útgáfum. Þeir segja "The Criterion Collection a continuing series of important classic and contemporary films" Stórlega mæli ég með að kaupa diska frá þeim.
Margt og mikið og stór og mikill. Svona er það og verður og er.
Tuesday, March 31, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment