Wednesday, February 11, 2009

Glímukappi

Það skemmtilega atvik gerðist að ég eignaðist ókeypis miða á Topp5 forsýningu The Wrestler. Ef fólk hefur lesið þá veit það kanski að ég varð frekar óánægður með Slumdog Millionaire og The Curious Case Of Benjamin Button. Bjóst nokkuð við að ég yrði fyrir vonbrigðum með The Wrestler líka. Svo er sko aldeilis ekki! The Wrestler er að mínu mati besta mynd ársins 2008. Algjört meistaraverk. Allt er nánast fullkomið við myndina. Stórkostlegur leikur Mickey Rourke sem Randy "The Ram" Robinson er ótrúlegur. Rourke fæddist til að leika þennan karakter.

Myndin inniheldur mun minni glímu en ég bjóst við, einungis 3 eða 4 atriði. Þetta er "character driven" kvikmynd. Algjörlega. Allir leikaranir standa sig frábærlega. Meira að segja glímukallanir sem eru ekki leikarar. Allir karakteranir voru áhugaverðir og skemmtilegir. Randy Robinson mun fara niður í kvikmyndasöguni sem einn allra besti karakter nokkutíman í kvikmynd.

Sumir munu líklega vera ósáttir með endann á myndini en fyrir mér var hann fullkominn fyrir þessa mynd. Hún hefði ekki getað endað betur. Mér finnst frábært þegar myndir enda ekki beint heldur karakteranir fá að lifa ennþá í heiminum sem myndin skapar. Darren Aronofsky sannar með þessari mynd að hann er einn allra besti leikstjóri af "nýju kynslóðini". Mynd hanns, Requiem For A Dream, var stórgóð en The Wrestler toppar hana í klessu.

Fjórar kvikmyndir frá árinu 2008 hafa "lamið mig í andlitið" og það eru The Dark Knight, WALL•E, Låt Den Rätte Komma Inn og The Wrestler. Þær sem ég á eftir að sjá eru The Reader, Milk, Frost/Nixon og Gran Torino. Býst ekki við að nein af þeim lemji mig í andlitið.

Ég hvet alla til að fara og sjá The Wrestler í kvikmyndahúsi þar sem þessi mynd er einstök upplifun. Myndin kemur í almennar sýningar í Háskólabíói 13. Febrúar.

Algjör niðurstaða: Ein allra besta kvikmynd sem ég hef nokkutíman séð. Strax komin í topp 20 ef ekki topp 10.

Stjörnugjöf: 5 af 5.

Ekki hef ég meira að segja í þetta skipti.

No comments:

Post a Comment