Wednesday, February 4, 2009

Enginn er nánast allur, þrjár kvikmyndir.

Nánast er enginn alltaf allur ef enginn er nánast allur. Ekki skil ég hvað ég er að meina með þessu en það verðru nú bara að vera þannig. Næst er best að finna út og leysa verkefnið. Ef verkefnið er ekki leyst er möguleiki á að allt hafi gleymst.

Nú að öðru. Kvikmyndin My Bloody Valentine 3D. Ég fór á hana og bjóst alls ekki við miklu. Fór reyndar bara til að sjá þrívíddina. Kemur í ljós að ég hef fundið verstu kvikmynd allra tíma. Ég finn ekki eitt einasta örmagn í myndini sem mér finnst gott. Allir leikaranir, karakteranir, leikstjórnin, myndatakan, tónlistin (tók nú ekki einu sinni eftir henni), útlitið og handritið var SKELFING!

Þrívíddin, ástæðan fyrir því að ég sá myndina, var glötuð. Leit út eins og mörg þykk lög af hlutum raðað saman í stórann bunka sem horft er beint á. Hver hlutur var sér í myndini og "3D effectið" kom ekki nema kanski 4 - 5 sinnum í myndini. Friday The 13th Part 3 var gerð í 3D. Þó svo að ég hafi ekki séð hana í þrívídd (bara venjulega) þá fannst mér þrívídin í henni betri en í My Bloody Valentine 3D. Sagan fyrir MBV er algjörlega fáránlega asnaleg. Það er ekkert vit í söguni. Þeir sem gerðu þessa mynd reyndu ekki einu sinni að gera hana "scary".

Ekki bara er myndin illa gerð og léleg heldur er hún huuuundleiðinleg! Snorefest væri betra nafn fyrir myndina! Það eina sem ég sá útúr þessari mynd var hlægilegasta "hrollvekja" allra tíma og þar að auki lélegasta mynd allra tíma. Í hvert einasta skipti sem einhver var drepinn, þá fór ég bara að hlægja. Þetta var alltsaman svo fyndið! CGI blóð og ógeð virkar ekki. Frekar taka tíma í að gera allt svoleiðis "practical" kostar öruglega minna og tekur mögulega styttri tíma. Day Of The Dead (1985) er fullkomið dæmi um frábært blóð og gore án þess að nota tölvu. Hví líta kvikmyndagerðamenn í dag ekki til þeirrar myndar og sjá "Jájá, það er hægt að gera þetta án þess að nota tölvu! En sniðugt!"

Algjör niðurstaða er: Versta mynd allra tíma.
Stjörnugjöf: einn milljónasti úr hálfri stjörnu.

Einnig er ég búinn að sjá kvikmyndinar The Curious Case Of Benjamin Button og Doubt.

Ég var ekki alveg nógu ánægður með The Curious Case Of Benjamin Button. Var ekki ánægður með hvernig myndin er sögð. Annasr algjörlega frábær mynd. Gef henni Fjóra og hálfa stjörnu af fimm.

Doubt var líka stórgóð og fyrir mér varð hún betri eftirá þegar maður fór aðeins að hugsa. Öll efasemdin í myndini er beint að áhorfendunum. Það sem þú heldur að gerðist er rétt. Fjórar stjörnur fyrir Doubt.

No comments:

Post a Comment