Sunday, February 22, 2009

Óskars kvöld!

Stöð 2 ákveða að svíkja kvikmyndaaðdáendur á Íslandi og sýna ekki óskarsverðlaunin í ár. Í gegnum "Skjáinn" er hægt að horfa á verðlaunaafhendinguna á þýsku sjónvarpsstöðini Pro 7. En þeir sem eiga ekki pening til þess þá er hægt að horfa á hátíðina hér http://www.newsletter.co.uk/CustomPages/CustomPage.aspx?PageID=77569

Það að Stöð 2 ættli ekki að sýna þetta er skelfilegt fyrir kvikmyndaaðdáendur. Ég var búinn að bíða nokkuð lengi eftir þessu en svo er það bara ekki! Ég mun horfa á þetta á netinu og fylgjast með rauða dreglinum á E! og fylgjast með á www.imdb.com

En hér ættla ég að skrifa niður það sem ég held um verðlaunin.

Besta Kvikmynd - Ég er búinn að sjá allar fimm myndinar sem eru tilnefndar; Slumdog Millionaire, The Cuirous Case Of Benjamin Button, The Reader, Frost/Nixon og Milk. Engin af þeim finnst mér eiga skilið verðlaunin. En ef ég mætti ráða þá væri það annaðhvort Benjamin button eð Frost/Nixon.

Besti Leikstjóri - Danny Boyle fyrir Slumdog Millionaire, Stephen Daldry fyrir The Reader, David Fincher fyrir Benjamin Button, Ron Howard fyrir Frost/Nixon og Gus Van Sant fyrir Milk. Ég er nokkuð viss um að Danny Boyle vinni þetta bara vegna þess að myndin hanns er Slumdog Millionaire. Ég vill að David Fincher vinni þetta en samt ekki fyrir Benjamin Button.

Besti Leikari í Aðalhlutverki - Það er nánast augljóst að Mickey Rourke vinni þetta. Sumir halda að Sean Penn vinni fyrir Milk. Það gæti vel gerst þar sem akademían er pínu skrítin stundum. Hinir sem eru tilnefndir eru Richard Jenkins fyrir The Visitor (væri gaman að sjá hann vinna þó svo að ég efist stórlega um það), Frank Langella fyrir Frost/Nixon og Brad Pitt fyrir Benjamin Button.

Besta Leikkona í Aðalhlutverki - Hérna er ég alveg týndur. Hef ekki hugmynd um hver gæti unnið þetta. Anne Hathaway fyrir Rachel Getting Married, Angelina Jolie fyrir Changeling, Melissa Leo fyrir Frozen River, Meryl Streep fyrir Doubt og Kate Winslet fyrir The Reader. Ættli ég segi ekki bara Meryl Streep.

Besti Leikari í Aukahlutverki - 100% Heath Ledger. Það þarf ekki að segja meira um það. Hinir eru Josh Brolin fyrir Milk, Robert Downey Jr. Fyrir Tropic Thunder (það væri nú gaman), Philip Seymour Hoffman fyrir Doubt og Michael Shannon fyrir The Reader.

Besta Leikkona í Aukahlutverki - Hér er ég ekki heldur viss en ef ég mætti ráða þá væri það Marisa Tomei fyrir The Wrestler. Ég er nokkuð viss um að það verði annaðhvort Amy Adams fyrir Doubt eða Penélope Cruz fyrir Vicky Cristina Barcelona. Hinar tvær eru Viola Davis fyrir Doubt og Taraji P. Henson fyrir Benjamin Button.

Besta Handrit, Upprunalegt - Ég vona að WALL•E vinni þetta þar sem handritið er algjörlega frábært og hefur gott skilaboð. Akademían velur sennilega Milk. Hin handritin eru Frozen River, Happy-Go-Lucky og In Bruges.

Besta Handrit, Áður Útgefið - Hér giska ég á Slumdog Millionaire bara vegna þess að það er Slumdog Millionaire. Vona algjörlega að Benjamin Button vinni ekki þar sem það handrit er nánast bara Forrest Gump 2 (reyndar bæði skrifuð af sama manni). Ég vona hinsvegar að Doubt vinni þar sem það var nokkuð gott og skemmtilegt handrit með ótrúlega frábæru after thought. Frost/Nixon og The Reader eru einnig tilnefnd.

Ég ættla ekki að fara útí hin verðlaunin en vona að WALL•E vinni besta teiknimynd!

No comments:

Post a Comment