Síðasta fimmtudag, 26. Febrúar horfði ég á eina allra bestu kvikmynd sem ég hef séð í langann tíma! Það var kvikmyndin The Cook The Thief His Wife & Her Lover. Alveg ótrúleg kvikmynd. Ein allra best myndaða kvikmynd sem ég hef séð. Alveg ótrúlega falleg útlitslega.
Myndin gerist mestöll á veitingastað og eru fjórir mismunandi hlutar veitingastaðsins sem við sjáum. Fyrir utan veitingahúsið, eldhús veitingahússins, matsalinn og baðherbergið. Hver hluti hefur sinn eigin lit. Fyrir utan er allt blátt, í eldhúsinu er allt grænt, í matsalnum er allt rautt og á baðherberginu er allt algjörlega hvítt. Föt leikarana breyta um lit eftir því hvar það er í veitingahúsinu. Kokkurinn reynir svo allt sem hann getur til að þjófurinn komist ekki að hvað konan hanns er að gera.
Myndin fjallar um mafíuforingja (The Thief) sem á afskaplega fínt veitingahús og konuna hanns (his wife) sem gera ekkert nema sitja við sama borðið á veitingastaðnum og éta. Einnig er eitthvað fólk með þeim alltaf, sennilega frændfólk og sistkyni. Konan er hinsvegar orðin voða leið á manninum sínum og ákveður að vera með öðrum manni á milli máltíða. Þau hittast ýmist á baðherberginu eða eldhúsinu.
Myndatakan er algjörlega frábær. Það er eins og myndavélin ferðist bara í eina átt og það beint eftir veggjum veitingahússins. Myndin lítur líka pínu út eins og leikrit. Einnig er mjög skemmtilegt að það er stórt málverk sem hangir í matsalnum og er útlit myndarinnar byggt á málverkinu. Myndin endar svo á að tvö stór og þykk rauð tjöld falla fyrir skjáinn.
Loka Niðurstaða: Glæsilega frábær kvikmynd/listaverk
Loka Stjörnugjöf: 5 stjörnur af 5 mögulegum.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment